Erna langbrók :D

hæ hollí húppa

27.02.2007 19:44:12 / # Erna #

veik

það er ekki gaman að vera veikur. fékk þessa hræðilegu flensu á sunnudaginn og er ennþá að ná mér þó að ég sé mikið betri en ég var.

allavega þá var gaman hjá mér dagana áður en ég var veik og byrja þá á að segja að ma og pa komu heim frá N.Y. og voru eins og venjulegir kanar... en ég fékk föt og var mjög ánægð með þau. aðallega billabong sem er ekki slæmt. en á laugardaginn fór ég á æfingu og fékk að vita að ég dansa sóló á vorsýningu listdansskólans... þvílíkt ánægð. hmm eftir það fór ég til tomma á skagann og við fórum á vistarhátíð þar sem ég náði mér í flensu og er núna að liggja hana af mér... alls ekki gaman... en það verður vonandi komið í lag fyrir næstu helgi...

langar til að hitta tomma núna... á ekki eftir að sjá hann soldið lengi því hann fer heim til sín næstu helgi og stelpurnar að fara til útlanda þannig að ég verð alein hér.. en svo næstu helgi þá er afmæli hjá Baldri fyrir vestan og amma og bróðir tomma eiga afmæli daginn eftir (10 mars) svo að mig langar rosalega að fara vestur þá... ef ég má...?

en það verður örugglega stuð á fólki...

jámm c u in a bit... (ef ég segi eins og tommi sagði alltaf á gömlu síðunni sinni... var að skoða hana í gær.. kjáninn sá arna ;) )

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.02.2007 19:32:31 / # Erna #

já góðan daginn

það er nú liðin löng tíð síðan ég bloggaði síðast.. alveg á síðasta ári... en eins og ég hef oft nefnt þá er ég drullulöt við að blogga. En ótrúlegt en satt þá langaði mig að breyta síðunni minni og júbb, blogga :D

ég er núna heima og er að reyna að læra eitthvað og gengur það ekki eins og í sögu.. semsagt ekkert að gerast :D en á morgun ætla ég að hafa hitting hjá vinum mínum og ætlum við að grilla og læti, og verður það vonandi bara gaman. Já, ummm ma og pa eru núna í new york. Voru að hringja og þau voru að klára við hádegismatinn sinn á meðan við hérna í myrkrinum vorum að klára kvöldmat. hah... já svona er heimurinn skrýtinn..  obb vitið ég er svo stolt, ég er að verða föðursystir :D:D já, bróðir minn er að fara að eignast litla snót  21 júní og get ég ei beðið. Faðir vor á afmæli 19 júní og viti menn... kannski fær hann barnabarn í afmælisgjöf :D

jæja, ég ætla ei að leiða ykkur lengra inn í líf mitt þennan dag svo að við heyrumst heil næst :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 12:36:19 / # Erna #

:D

hæhæ langaði bara að blogga pínu....

það er nú ekkert merkilegt búið að gerast undanfarið... bara búið að vera upp í sumarbústað með familíunni og reyna að klára hann... búið að taka 4 ár en þetta kemur... það er mikið sem er framundan hjá mér núna... byrja kannski á að segja að ég ætla að reyna að taka aftur þetta helv*** bílpróf á miðvikudaginn og reyna að ná því af því að þá get ég farið að ferðast meira sjálf og jahh... það segir sig nú bara sjálft... ég get gert miklu meira sjálf...:D en ég ætla nú ekki að gera mér miklar vonir þar sem ég féll á fyrra prófinu....:^)

Nú þegar ég er búin með prófið þá ætlum við í ferðalag á vestfirðina... við förum síðdegis á miðvikudegi til stykkishólmar og gistum þar... svo vöknum við og siglum til brjánslækjar á fimmtudagsmorgninum og vonandi hittum Tómas þar á leiðinni því hann ætlar með... svo er ferðinni haldið á Bolungarvík þar sem að einhver frjósemishátíð er haldin...  pabbi er víst að fara að skemmta og við verðum að ferðast um vestfirðina á meðan... held að þetta verði voða skemmtilegt...

en bara núna á eftir þá ætla ég að kíkja á draugasetrið á Stokkseyri...8| systir mín er búin að væla um að fara á það.. þannig að við mæðgurnar þrjár ætlum allar að skella okkur... þetta á að vera eitthvað voða spúkí en ég er búin að veðja við mömmu um að öskra ekki neitt og þá ætlar hún að gefa mér 500 kall:D:D vonum bara að ég öskri ekki..8)

svo á morgun þá ætlum við að breyta til hérna heima... systi mín fer í herbergið hans óskars og ég fæ herbergi mitt og sólrúnar.. við ætlum að brjóta vegginn á milli okkar og þá fæ ég svona svefnherbergi og stofu:D:D

jæja ekki er mikið meira á dagskrá hér þannig.... bæ


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.06.2006 11:22:03 / # Erna #

Dugleg!!!

Vitiði hvað ég var dugleg í morgun??? jú ég fór út að skokka!

Já, ég vaknaði klukkan 8 og var komin út um hálf 9.... systir mín ákvað að vera líka dugleg og kom með... ég var ekki alveg búin að ákveða hvert ég ætlaði að fara því ég ætlaði bara eitthvert...en svo fattaði ég að ég átti eftir að gefa fiskunum hans Finns (frændi minn sem er úti í Noregi) þannig að ég ákvað að slá til og hjóla til hans, fara og skokka einn hring í kringum rauðavatn og hjóla svo aftur heim... systir mín var það dugleg að hún náði að hanga með mér allan tíman... ég tók þó nokkuð vel á og ég get sagt ykkur það að vatn og sturta hefur aldrei hljómað eins vel og þá!!

Nú planið í dag er að hjálpa pabba að taka til því mamma kemur heim á morgun frá Ítlalíu og við viljum ekki að hún komi inn í þessa svínastíu!! þannig að við verðum að gjöra og svo vel að taka til! jæja svo þegar við erum búin að vera duglegar þá fer pabbi að skemmta frá 1 - 4 og á meðan ætla ég að lesa ökunámsbókina því að ég er að fara í bílprófið á föstudaginn klukkan 9 um morgunin:D svo ætlum við út að borða og svo ætlum við í bíó á mission impossible 3.. held að hún sé alveg ágæt...

Svo ætlum við stelpurnar að gerast frumlegar og horfa á einn leik í HM... láta okkur líða vel fyrir framan sjónvarpið :D en já... hef ekki meira að segja svo bæjj..:lol:


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.06.2006 12:51:41 / # Erna #

:D

Jæja ég er að hugsa um að láta verða af því að blogga...  hmmm það er soldið mikið sem hefur á daga mína drifið undanfarið og ég ætla að segja frá helginni sem ég fór á mína fyrstu torfærukeppni... en þeir sem ekki vita að þá hef ég óendanlega mikinn áhuga á bílum, jeppum og núna torfærubílum... Frændi Tomma er að keppa í torfærunni og hann er á bíl sem kallast Dýrið... núna er ég reyndar að passa og ekki í minni tölvu en þegar ég kem heim mun ég setja myndir inn af keppninni fyrir þá sem vilja skoða... Keppnin var haldin á Akureyri 3 júní og ég og Tommi ákváðum að fara í road trip á norðurlandið. Fórum á föstudegi og komum á sunnudegi..

Við vöknuðum á föstudeginum kl hálf 8 og keyrðum heim til bróður míns og Guðbjargar til að passa hundinn... við vorum þar til rétt að verða 12 þá þurftum við að ná í syrstur mína sem var heima og átti að taka við af okkur því við þurftum að drífa okkur ef við áttum að koma á skikkalegum tíma... Skari og Guðbjörg komu líka en þau komu seinna því vinnan og skólinn drógugst eitthvað á langin en þau voru komin norður um hálf 12 um kveldið...

Á laugardaginn var vaknað um níu leytið og ætlunin að taka ferjuna klukkan 10 en þá föttuðum við að hún gengur á 2 tíma fresti og þá biðum við til 11... nú við komumst á Akureyri og keppnin byrjaði kl 1... Tommi var að hjálpa Bjarka frænda sínum sem keppir á Dýrinu og Sigga bróðir Bjarka... keppnin gekk fínt þó að helmingur hafi dottið úr keppni vegna bilana eða skemmda... kallarnir náðu góðum árangri og lentu í 4 sæti yfir heildina og í 2 sæti í götubílaflokki.. alls voru 8 brautir og sú síðasta var tímataka og endaði í risa polli... ótrúlega flott.. svo var keppnin búin um 5 leytið og ferjan fór hálf 6... við hefðum ekki náð ferjunni þannig að við fórum í bíltúr á Dalvík á meðan og keyptum okkur ís.. ég fékk mér sjeik :D við náðum ferjunni hálf 8 og þá höfðu Óskar, Guðbjörg og Kría farið á sjó með afa og veitt í matinn... mmmm rosalega gott... þegar við vorum búin að borða ákváðum við að fara í göngutúr því ég ætlaði að sýna Tomma eyjuna en hann hefur bara farið þarna einu sinni áður og það var þegar hann var í 5 bekk... umræðuefnið var einhæft en við vorum að tala um traktora allan tímann.. já og við vorum að leyta að eins traktor og ég hef keyrt en við fundum hann ekki.... Stelpurnar ( Íris, Íris, Gréta og Ásdís) hringdu í mig... þær voru í sumarbústaðaferð í sumarbústaðnum hennar Grétu.. mig langaði soldið með þeim en Tommi á bara frí aðra hverja helgi og þetta var akkurat á þeirri helgi svo að ég varð að velja....

Laugardagurinn leið skemmtilega og sunnudagurinn kom með mikilli sól... þá var okkur boðið að fara á sjó og við lögðum í hann um 10 eða 11 man ekki alveg... það var rosa gaman.. fórum á gamla bátnum hans afa sem heitir Bára... fullt af fiski var veiddur þ.á.m. tvær ýsur, einn ufsi og restin var þorskur... alls voru þetta hátt í 12 fiskar eða þar um bil... við komum heim í Hamar (heitið á húsinu) og fengum að borða.. svo var ákveðið að spila snúningstennis... fyrst Óskar og Guðbjörg, svo ég og Tommi svo spiluðu þeir sem unnu það saman og jújú ég og Skari kepptum og hann vann mig... svo kepptu Guðbjörg og Tommi og Guðbjörg vann...  Óskar og ég spiluðum aftur og þá vann ég hann híhí... hann varð fúll yfir því að tapa fyrir litlu systur svo að hann bað um re-match og ég tók því... ég veitti mikla mótsprynu en hann vann mig... því miður...harðsperrurnar létu á sér bera næsta dag :S jæja við tókum 3 ferjuna heim og vorum bara að taka því rólega.. komum heim hálf 10 og ég náði að kveðja mömmu áður en hún fór til Ítalíu..!

Í gær 7 júní lagði ég inn umsókn fyrir ökuskírteini og á morgun 9 júní má ég hringja í frumherja og panta bílpróf..:D:D:D ég hlakka svo til að fá bílpróf.. það er reyndar búið að taka pínu tíma en loksins er ég að láta af þessu verða:D  

Ókei ég held að þetta sé orðið gott blogg…. Bæ:D


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 15:07:24 / # Erna #

Nýr fjölskyldumeðlimur:D

Já, nú er bróðir minn búinn að kaupa sér hund.... það er ss tík sem heitir Kría og er algjör rúsína.. hún er blanda af Border Collie og íslenskum fjárhundi.. algjört yndi...

það er nú samt margt sem hefur komið fyrir þetta litla fjögurra mánaða grey.. skötuhjúin Óskar og Guðbjörg ákváðu að skilja hana eftir heima og gá hvernig það gengi og satt að segja var grey hvolpurinn nærri búinn að drepa sig..já ótrúlegt en satt... sko hún náði að hoppa upp í gluggakistu og út um gluggann sem var uppi.. hún tróð sér út um hann og festi ólina þannig að hún var nærri búin að hengja sig.. svo kom kona þar framhjá og náði henni niður... en hún missti hana og Kría þaut út á götu og munaði engu að hún yrði fyrir bíl..bíllinn rétt náði að hemla og Kría komst undan.. konan náði henni aftur og las á ólina.. þá var það heimilisfangið fyrir ofan Óskar og Guðbjörgu.. það er afabróðir hennar Guðbjargar sem á heima þar... hann festi hana bara í band og hélt í bandið þangað til að þau komu heim....

Nú í gær var ég beðin um að passa litla krílið og ég var meira en til í það... við höfðum það notalegt saman og fórum í göngutúr og út að leika og fleira skemmtilegt... svo var ég líka beðin að passa hana aftur í dag og auðvitað var ég tilbúin.. við sofnuðum í sófanum hlustandi á músík...svaka kósí:D

en svo er soldið mikið að gera næstu helgi hjá mér... Tommi kemur á fimmtudaginn og ég get auðvitað ekki beðið eftir að hitta hann... búinn að vera í burtu í 11 daga :| en hann er að koma og ég hlakka til að hitta hann:D

jæja segi þetta gott í bili...:P


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 14:37:24 / # Erna #

bloggi blogg

Já ég held að það sé kominn tími til að blogga núna...

Ég er ekki búin að vera dugleg en það er einfaldlega vegna þess hvað það er mikið að gera hjá mér og ég er líka pínu löt:P en það er allt í lagi....

Það sem hefur komið fyrir hjá mér undanfarið er þó nokkuð... ég kláraði prófin 17 maí sem er einmitt afmælisdagur Tomma og þá varð hann 18 ára...:D en svo var lokaball um kveldið og það var með eitt af skemmtilegustu böllunum fannst mér.. við stelpurnar tókum algert flipp.... bæði í fyrirpartýinu og á ballinu sjálfu sem var haldið í Versölum niðri í bæ..

Nú eftir ballið kom tommi að sækja mig og ég gaf honum gjöfina sína sem var banjó (sem pabbi átti þegar hann var ungur.. ss búið að laga það) gula gúmmíönd sem hann langaði í og bol... hann var bara nokk ánægður með það held ég...

Nú á fimmtudeginum hélt ég júrívisjonpartý og það var mjög skemmtilegt... þar grilluðum við og íris kom með drykkjarbók þar sem uppskriftir að allskonar góðum drykkjum var.. mjög sniðugt... svo þegar júróvisjon var búið og allir búnir að hlaða í sig grillmat og nammi kom íris hrund úr vinnunni... svo komu líka strákarnir, Tommi og Axel... þeir voru ss að horfa á júróvisjon heima hjá Axel... þeir fengu sér nammi og frábæran eftirrétt sem íris hrund kom með... geðveikt góð kaka...

En um kveldið var ég komin með alveg svakalegan hausverk og var frekar sloj... en ég fór bara snemma að sofa og vaknaði daginn eftir.....

Þá var nú haldið vestur á Kjarlaksvelli..:D heim til Tomma... fyrst þurftum við að erindast eitthvað í bænum og ná í Elísu og Söru vinkonu hennar... en svo fljótlega eftir það lögðum við af stað....

Þegar við vorum komin í sveitina vorum við send eiginlega strax út í fjárhús....þá tók ég á móti fyrsta lambinu ..:D og svo fékk ég líka að velja mér lamb:D:D algjör rúsína... veit samt ekki hvað ég á að nefna það...

Á laugardeginum var gullbrúðkaup hjá ömmu og afa Tomma.. fullt af fólki kom og óskaði þeim til hamingju.. þar á meðal Helgi bróðir Tomma og Birgitta kærasta hans og æðislega svilkona mín:D þar voru kökur og fleira á borðstólnum... mmmmm... nammi kaka:D um kveldið var horft á júróvisjon... aðalega stelpurnar og Tommi því ég var send út í fjárhús að gefa lömbunum að drekka.... sem var nú bara ekkert slæmt... svo þegar ég kom inn náði ég úrslitunum og var bara nokk sátt....

Ég er að taka eftir að þetta er soldið langt blogg en hvaða máli skiptir það??? Nú seinna um kveldið voru stelpurnar búnar að fara í sturtu og gera sig fínar til að fara í júróvisjonpartý á Reykhólum....? ókei við þangað.. hittum Kobba, Braga og Ása á leiðinni og fórum að rúnta á reykhólum... svo vorum við komin aftur heim um tvö leytið..:D

Annars bara mjög gaman..:D

Á sunnudeginum vöknuðum við seint og fengum mat:D ótrúlega gott... nú strax út í fjárhús eftir það og stelpurnar áttu að vatna og Tommi að moka skít... en Elísa nennti ekki að vatna og vildi frekar moka skít og Tommi samþykkti það á staðnum....en ótrúlegt en satt endaði það á að Tommi, ég og Sara mokuðum skítinn... samt aðallega ég og Tommi:D

Um 4 eða 5 leytið komu Óskar og Guðbjörg að sækja mig.. við sýndum þeim bæinn og líka hvernig lamb kemur í heiminn:D bróðir mínum fannst það bara þó nokkuð merkilegt að sjá og hann er gaur sem tekur fyrir nefið þegar hann kemur inn í fjárhús:P en svo á heimleiðinni stoppuðum við í Borgarnesi og fengum okkur ekki góðan mat að borða...

 Um 10 um kveldið kom stelpu hersing og rændi mér í bíó að sjá Bandidas og hún var bara ágæt:D ég kom heim og fór að sofa....

Nú er bloggið orðið of langt þannig að ég segi bara gott í bili:D

 

Ps. já ég vil bara minna á að myndir frá ballinu og júróvisjonpartýinu á www.blog.central.is/mannaetuhamstur síðu okkar stelpnanna...


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 14:00:09 / # Erna #

2 búin 3 eftir....

Já, ég held að ég hafi aldrei verið svona róleg yfir prófum áður... þetta er búið að ganga mjög vel og ég hef eiginlega ekkert verið stressuð.. ég var með rosalegan prófkvíða síðustu ár en ég held barasta að hann sé horfinn á braut..:D sem er nú ekki slæmt...

En svo fer maður bráðum í sumarfrí og fyrst ég verð ekkert að vinna þá ætla ég að gera sem mest í allt sumar... nú það byrjar svo skemmtilega á því að ég ætla í heimsókn til Tomma 18 - 21 maí.. hann verður þá nýbúinn að eiga 18 ára afmæli ;) hlakka rosalega til að gefa honum gjöfina... en svo verður örugglega bara horft á júróvisjon þar í sveitinni... eða gera eitthvað skemmtilegt með lömbunum.. eða eitthvað annað....:haha:  Nú fljótlega eftir það förum við fjölskyldan í fyrstu útileguna... hlakka voða til... svo förum við kannski í óvænta útlandaferð... svo er líka ættarmót og gifting og eíríksstaðahátíð og jeppaferð með spaugstofunni og bústaðaferð með vinkonunum og vá hvað ég á eftir að gera mikið í sumar!!!

En já.. svo er ég að verða búin með fyrsta árið mitt í Kvennaskólanum í Reykjavík og er bara nokkuð stolt með ágætan árangur..:D:D

En fyrst ég er ekki búin með öll prófin og er á leiðinni í eitt á morgun ss. frönsku þá ætla ég að láta þetta gott heita í bili...

bæbæ og gleðilegt sumar allir :haha:

P.s. ég var að fatta að ég byrja allar setningarnar á " En" tíhí.. já ókei bæ ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 14:11:19 / # Erna #

Sumar!!!

Já, við getum sagt að það sé komið sumar!!

Dagurinn í gær var hreint frábær!!... byrjaði á því að vakna klukkan 9 og fara út í góða veðrið. Svo vakti ég Tomma, sem gisti hjá mér, klukkan 10 eða eitthvað... við vorum boðin í mat hjá afa mínum klukkan 11 og hann tróð ofan í okkur saltkjöti með kaftöflum og rófum.. þetta var bara ágætt hjá kallinum... nú svo var farið að erindast í bænum og ná í buxur handa bróður Tomma... svo þurfti að skutla vini hans, Skarpa á KFC að fá sér að borða og hitta kærustuna sína.. nú þegar það var búið var ákveðið að flatmaga í garðinum heima!! sjitt hvað það var þægilegt!!

Pulsur grillaðar og látið renna í pottinn.... sólbað og bikinífar:D hreint æðislegt og nú er alveg formlega komið sumar!! Óskar ákvað nú samt að stríða systur sinni með því að sprauta á hana ísköldu vatni úr súpervatnsbyssunni sinni... ég hljóp inn, fór í sundstuttbuxur og borgaði honum til baka... nú þegar ég lá þarna á teppinu  við hliðina á Tomma þá kom bróðir minn enn og aftur og lagðist ofan á mig rennandi blautur!! þá varð ég nett pirruð og gat í rauninni ekki gert neitt við hann því hann var þá þegar blautur... en ég næ mér niður á honum einhverntímann... svo var eiginlega farið að kúra og glápt pínu á sjónvarpið og slakað á :haha:

jæja ég get allaveganna ekki beðið eftir sumrinu og ferðalögum og sólarlandaferðum og sólbaði og nú auðvitað sólinni!! en hef í rauninni ekki meira að segja en Gleðilegt sumar!! :D:D


» 9 hafa sagt sína skoðun

06.05.2006 09:21:07 / # Erna #

Skagaball/lokaball

Jæja... þá ætla ég að láta verða af því að blogga pínu...:lol:

Nú ballið var frábært... enda byrjaði það líka mjög svo skemmtilega... nú stelpuna vantaði skó fyrir ballið og ákvað hún þá að skella sér í “smáralindarfötin” að hætti Ásdísar og Írisar Hrundar og fara að versla með þeim stöllum og Írisi S.... en ég keypti mér skó sem eru bara nokk fínir.. svartir með bandi og ekki hælar... en já, svo á leiðinni heim í strætó skemmtuðum við Íris okkur í “ Gulur bíll”... sem að er bara rosalega viðhaldandi leikur..:$

 

Nú þegar stelpan var orðin fín og tilbúin á ballið þá kom Tommi minn að sækja mig á græna súper bílnum hans Axels... nú beint heim til Írisar og Axels var haldið í pínu fyrirpartý... sem var bara ágætt... biðin var löng því það var svo milkill spenningur fyrir Limmunni og svo auðvitað ballinu.... en biðin tók enda og limmósínan kom og skutlaði okkur á ballið... (til að taka það fram þá var þetta í fyrsta skipti sem ég fór í limmu ;) og líkaði bara nokk vel) músík var spiluð alla leiðina og allir í góðum fíling! 8)

 

Á ballið komum við um rétt að nálgast hálf tólf.... inn á ballið skunduðum við og skemmtum okkur frábærlega vel

 

En svo skildu leiðir :cry: ég fór heim um miðja nótt... ( yndislegi bróðir minn hann Óskar kom og náði í vandræðagemsan á skagann!) og hinir fóru vestur á fótboltamót...og já mig langaði, en nei ég var að fara á æfingu daginn eftir, og já ég var mygluð!

 

Jæja enn og aftur var gaman á skagaballi og hlakka til þangað til næst...

 

Hey já, svo fer bara að styttast í bílpróf...! :$ og já ég var að fá stafræna myndavél!! :haha: nú get ég sett inn myndir! víj ég hlakka svo til... en jæja bæ..:haha:

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 21:17:27 / # Erna #

17 ára....:D

Jæja nú er stelpan orðin 17 ára Dansing Queen...:D ooog það er ótrúlega skemmtilegt..

Föstudagurinn 21 apríl byrjaði á Íþróttum :D sem var bara þó nokkuð skemmtilegt... En svo eftir íþróttir gáfu litlu englarnir mínir mér gjöf...:o svo sætar... það var sem sagt bolur með kökuskrímslinu í muphets eða e-ð á, risastór hvít sólgleraugu, nærbuxur, þríhorn, kúrekahattur, lögreglumerki sem var fast við æðilsega rauðan sundbol og auðvitað handjárn8) já ég get sagt ykkur að stelpurnar misstu sig pínu á laugarveginum en ég meina hver gerir það ekki??? :D svo var sungið fyrir mig í tíma...:D en þegar skólinn var búinn kom Tommi minn og hann gaf mér S&M... sem við horfðum svo á heima:D en Tommi og við stelpurnar ( Tinna G, Íris S., Íris H, Gréta, Ásdís og Sara) skruppum öll á kaffihúsið í ráðhúsinu... þar kom íris snillingur og hellti niður heilum kakóbolla og braut hann í þokkabót...haha æji krúttið... en þegar kvöldið kom þá var farið út að borða á Skólabrú...:D ótrúlega flott... 

Forrétturinn uppi var kavíar og óáfengt vín... þar fékk ég fyrst blóm frá Óskari og Guðbjörgu og svo frá pabba og mömmu fékk ég litla snigilinn sem er BÍLL :D:D:D ég var ótrúlega glöð.. Nú svo var það maturinn sem fær góða dóma hjá mér..... ég fæ vatn í munninn við tilhugsunina... þetta var yndislega gott....svo þegar við komum heim um 11 leytið lá leið okkar Tomma í bekkjarpartý hjá Auðunni í NA bekknum.... við vorum ekkert voðalega lengi þar svo að við drifum okkur í bíltúr sem við nenntum ekki alveg að vera í svo að við skruppum í smá stund til Írisar og Axels og horfðum á Family Guy... alger snilld... Eftir það var það bara rúmið og svefn.....:$ ótrúlega skemmtilegur dagur....

jæja næst þegar ég skrifa verður það eftir lokaballið á skaganum...:D:D:D

þangað til næst.... :P


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 10:42:58 / # Erna #

Sveitin....:D

Já ótrúlegt en satt er ég að blogga aftur....:lol:

Sko, á fimmtudagsmorgninum þá kom Tommi minn að sækja mig og við fórum í sveitina hans...svaka stuð... hann sýndi mér sveitina hans sem var mjög stór og fín....þegar við vorum búin að borða þá fórum við í fjallaferð upp á Þorskafjarðaheiði... þar var vélsleðinn tekinn upp og brunað út í óvissuna...8) eða kannski ekki alveg óvissuna, svona meira upp á fjallið.. en allaveganna þá var farið í kapp á stíkasleða og svo var ákveðinn aðili sem ákvað að festa bílinn... en ekkert meira út í það... þegar þessari skemmtilegu ferð var lokið var farið heim...

2 kindur eða svo ákváðu að sýna sig eftir langan tíma á fjöllum allan veturinn... Tommi minn stökk þá af stað með fullt af fólki... ég var eftir heima og litli bróðir hans, Guðni.... hann stakk u.þ.b. 7 sneiðum af ristuðu brauði með sméri ofan í sig, og þá var ég sótt til að koma og spila félagsvist með fullt af fólki frá nálægum bæjum...æðislega skemmtilegt. ( og bara til að taka það fram þá kunni ég ekki félagsvist áður :S) Tommi minn vann páskaegg nr. 3.... rosalega duglegur...:haha:

Dagurinn byrjaði á að sofa út... til svona 12, þá fórum við niður og fengum yndislegan föstudagslangahádegismat..... Tókum einn rúnt í Kot og svo var pakkað og haldið heim á leið....:$ Svaka góð byrjun á spennandi sumri....:haha:

Jæja.... ég blogga næst eftir afmælið mitt sem er eftir 5 daga... :lol: og þá verð ég 17 ára;)

Jæja.... bæbæ


» 9 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 09:35:48 / # Erna #

hæhæ...

Jæja, þá ætla ég að byrja að blogga um þetta erfiða páskafrí.... sko páskafríið byrjaði á að mamma og pabbi hittu Tomma.... þeim líkar vel við hann og hann var hjá mér þangað til hann þurfti að fara heim... svo í millitíðinni hélt ég pottapartý, sem var bara nokkuð vel heppnað og fór í hitting hjá Írisi Hrund. Það var líka mjög gaman þar sem við Tommmi unnum í Party og Co.  Vúhú...! Frábær fammistaða... en svo er það líka blessaði ballettinn sem er alltaf að  stoppa mig í öllu... hef ekki einu sinni tíma til að borða.... og ég held að ég hafi misst 5- 6 kíló.....:$ allaveganna þá var sýning í gær og hún heppnaðist frábærlega og ég með 4 marbletti á bakinu..... en svo er önnur sýning í dag og vonandi verður hún góð... svo er bara vikupáskafrí áður en ég byrja aftur á öllu stressinu og prófunum og lærdómnum og æfingum og öllu.... úff úff og æj æj.... jáhh og ég held að ég segi nú bara ekki meira..

en ég ætla samt að minna á síðuna okkar stelpnanna en hún er:

http://www.blog.central.is/mannaetuhamstur 

alveg frábær síða og allir að kíkja... Bæbæ...:D


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.03.2006 22:14:44 / # Erna #

Skagaball

Ahh, sko þetta var skemmtilegast í heimi.... Íris vinkona mín spurði hvort ég vildi ekki koma með henni og vinum hennar á skagaball um helgina og jú ég fékk leyfi foreldra minna og skellti mér á ballið... það var svo mikið stuð.. sko fyrst fórum við heim til Grétu sem á heima á borgarnesi s.s. ég og Ásdís og við vorum hjá henni á meðan Gréta fór í píanótíma... þar sem við erum svo hugmyndaríkar þá ákváðum við að taka til í herberginu hennar sem var eins og, já skiptir engu, en svo fórum við að spila og fengum pizzu og allez...

Nú svo byrjaði þetta svo skemmtilega að við misstum af rútunni til akranes. Byrjar vel en pabbi hennar Grétu var so góður að skutla okkur. Við skutumst á skagann. Þar hittum við Írisi, Axel og Tomma og skruppum aðeins á vistina hjá þeim eða réttara sagt Tomma sem er í skóla þarna... þetta var grímuball og ég var índjáni, Íris rokkari eða Alice Cooper, Gréta var kisa, Ásdís var prinsessa, Axel var sjómannahermaður eða eitthvað í þá áttina og Tommi dúlla var sjómaður..

Nú þegar ballið byrjaði var stuðið að magnast og endar maður ekki bara með dreng í fanginu... ;) svaka stuð hjá okkur tveim. Drengurinn heitir sem sagt Tómas og er kallaður Tommi og hann er mesta krútt í heimi, finnst mér, en við skemmtum okkur ótúlega vel á ballinu. Þetta var mitt fyrsta ball úti á landi og alls ekki, ég endurtek ,alls ekki það síðasta:lol:

jæja ég kveð að sinni ahh....


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.10.2005 18:30:01 / # Erna #

Ahhh!

Þá er vikan næstum búin og það þýðir að skólinn er næstum búinn. En þá kemur helgi og þegar það er sunnudagur þá er svo leiðinlegt því daginn eftir er skóli og langur dagur í ballett. Og svo til að bæta á það þá er sögupróf á þriðjudeginum og ballett til 21:30! hjálpi mér!!! ég veit ekki hvernig ég hef þetta af? En af hverju er ég að tala um þetta? En... ég er farin að hlakka svo til jólanna og fleiri ,veit ég, því við vorum nokkur bekkjarsystkini í dag að tala um jólin, jólaskreytingar og kökur og gjafir, jólasveininn og margt fleira. Ég held að þessar umræður hafi byrjað á því að við vorum að tala um nesti og þá sagði ég að pabbi minn býr til nesti handa mér og allir vour að furða sig á því. Þá sagði ég að hann bakaði stundum kökur á morgnanna (sem hann gerir) áður en við vöknum því hann er stundum andvaka og vaknar bara um 5 eða eitthvað og getur ekki sofnað. Þar sem hann hefur svo gaman af að tala um mat og búa til eitthvað nýtt þá bjó hann til sína eigin kökuuppskrift. En það er 'Appelsínukaka alla pabbi'. Hún er geggjað góð! En svo leiddi þetta einhvernveginn út í jólin. Svo má ekki gleyma því skemmtilegasta við jólin, en það er snjórinn. Og snjó fylgir bretti sem ég hef einstaklega gaman af. Þá byrja allir að spyrja sig, ballett og bretti... hummm þetta passar ekki. Hvað þá ballett og Metallica? Ég verð bara að viðurkenna að ég hef mjög sérstakan smekk Og mér finnst ekkert að því að ég sé í ballett og fari á snjóbretti og hlusta á rokk. Jæja þá held ég að ég sé búin að blogga nógu mikið rugl í dag að ég læt þetta nægja.

                                                                                   Þangað til næst! ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
hven�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1756 dögum
Dagsetning
10. febrúar 2012
ýmislegt